þriðjudagur, desember 16, 2003

"Dragið hreint fyrir næsta mann".

Ætli það sé ein svona helvítis handklæðadolla eftir á landinu sem virkar - þ.e.a.s. að maður hafi þann möguleika að hlýða beiðninni um að draga hreint fyrir næsta mann ef manni sýnist svo? Um það efast ég. Stórlega.

mánudagur, desember 15, 2003

Mig blóðlangar að sjá 3 myndir í bíó - City of God, Wonderland og Helga Hó. Það verður nóg að gera á fimmtudaginn kemur. Svo sýnist mér vera að rofa til i tölvumálum. Fyrsta lagið sem ég mun downloada: Iko Iko (gömlu útgáfuna).
Hvaða ómenni setti inn komment í Gest Einar undir nafninu katrin.is? Ég var að skrifa henni bréf - hún kannaðist ekkert við þetta og heldur núna, eða veit, að ég er brjálæðingur. Sökudólgurinn vinsamlegast gefi sig fram - ég vil ekkert endilega berja viðkomandi illa heldur aðallega finna út hvort þetta var sjálf Katrín eða einhver tölvugrínari. Fyndinn djókur, samt.
Men´sker bliver spist i Polynesien.
Hulalulalej, hulalulalej.

fimmtudagur, desember 11, 2003

Einn er sá drykkur sem aldrei mun dala
Svo déskoti góður menn drekk´ann úr bala
Auðvitað vit´allir um hvern ég tala
það er ekk´um annað að ræða en............?

Gettu nú!!!
Nú er vika í að prófin klárist. Ég er þegar búinn að ákveða nokkra hluti sem ég ætla að gera þá, m.a. að:

- hlusta á "Í Skugga Morthens" með Bubba á hæsta styrk og syngja með...

- fá mér kaffibolla á Kaffivagninum niðri á höfn og reyna að fá að kaupa af þeim einn bolla sem er merktur Kaffivagninum...

- fara í Vesturbæjarlaugina og eyða þar a.m.k. 3 klst...

- búa til eggjasalat...

- fá Val, Ölla og Sigga með mér í Trivial Pursuit. Ekki væri verra ef það væri Trivial Pursuit 80´s sem ku vera á kreiki í bænum...

- sjá myndina um Helga Hóseasson í bíó, þ.e.a.s ef enn er verið að sýna hana - hef ekki séð bíóauglýsingar í marga mánuði...


Ljómandi verður gaman þá - dúndrandi gleði og glaumur. Rokk um alla blokk!
"Skín í rauða skotthúfu........" Frábær auglýsing. Af hverju eru allir að pirra sig svona á þessu? Mér finnst þetta bara ósköp sætt. Lagið er líka gott. A.m.k. betra en 99,9 % af þessum viðurstyggilegu jólaauglýsingum sem ætla mann lifandi að drepa um hábjartan dag í skammdeginu. Áfram Malt og Appelsín!
"Umframframleiðsla" er fáránlegt orð. Af hverju ekki að stytta það í "umframleiðsla"? Það væri helvíti töff. Er einhver hætta á að nokkur maður myndi misskilja þetta á nokkurn hátt? Ég ætla að skrifa "umframleiðsla" á prófinu og gerast þannig íslenskufræðilegur frumkvöðull og heimsfrægur nýyrðasmiður. Hefur einhver eitthvað við það að athuga? HA??? Já komiði bara bölvaðir, ég skal sýna ykkur.....

miðvikudagur, desember 10, 2003

"Það er ekki möguleiki að neinn fari í janúar. Við þurfum á öllum að halda vegna allra meiðslanna. Það eru meiri líkur á því að blaðamaður spili með Manchester United en að Bruno fari til Grikklands." - segir Gerard Houllier. Ég er farinn að fá það illilega á tilfinninguna að maðurinn sé ekki bara froskur og gjörsamlega vanhæfur stjóri heldur sé hann á einhvern hátt geðfatlaður líka.

Að öðrum málum:

Eins og flestir nema þeir sem eru fífl vita er ég fluttur á Stúdentagarðana. Þar býðst mér frí ADSL nettenging með öllum þeim lúxus sem henni fylgir, t.d. að geta downloadað tónlist frá morgni til kvölds og lengur ef þurfa þykir. Meinið er að ég á enga helvítis tölvu sem nettenging virkar í. Ég á skjá og lyklaborð og allt það en vantar bara kassann. Þetta þarf ekki að bera neitt dúndur stöff heldur bara þannig að ég geti fengið netið (kann ekki að orða þetta á tölvumáli). Ef einhver veit um eitthvað á góðu verði má sá hinn sami endilega hafa samband. Fundarlaunum heitið.
Katrín.is er líka damn fine. Katrín er eftirlætis nafnið mitt.

þriðjudagur, desember 09, 2003

Habbasonna. Traust, gæti orðið traust. Gleðileg jól, öll saman.

fimmtudagur, desember 04, 2003

Var í Popppunkti á þriðjudaginn. Þátturinn verður ekki sýndur fyrr en í kringum jólin þannig að... meira um það síðar. Núna: prófalestur! Vúppídúúú. Katrín varaformaður vinstri grænna er foxy lady.
Jólaboðskapurinn

miðvikudagur, nóvember 26, 2003

Ég er með ræpu. Mig grunar að annaðhvort mjólkin eða sjálft kaffið sem ég drakk í morgun hafi verið myglað. Nú eða McVities kexkökurnar. Satans vitleysa að rífa sig upp fyrir allar aldir til þess eins að vera drullandi og syfjaður eftir hálftíma. Það er líka síberíukuldi úti og ég er að falla á tíma með þessa ritgerð. Þetta verður vondur dagur.

þriðjudagur, nóvember 25, 2003

Nokkrir skuggalegir skiptinemar að spjalla saman fyrir utan Hlöðuna:

a): "Hey Andy - come to my house tonight, ha? We are going to watch a movie, an english movie, very good."

b): "What movie?"

a): "Very good - with Eric Roberts!"

Gott að vita að skiptinemarnir okkar elskulegu eru ekki einungis smekkmenn miklir heldur hafa nóg við að una í prófunum.
Smá viðbót við jólagjafalistann:

Rottweiler DVD
Limbó + Tvíhöfði DVD
70 mínútur DVD
Breaking news! Ölvir Gíslason er illa haldinn af fitu - má ekki borða lengur og fær næringu sína (safann úr soðnum SS pulsum) í æð meðan hann liggur og horfir á Tomma og Jenna eins og sjá má hér. Ég hef áhyggjur af þessu, ég verð að segja það...

mánudagur, nóvember 24, 2003

Stuðmenn á Hlíðarenda.
Pabbi gaf mér Sódómu Reykjavík á DVD áðan. Nú á ég 2 DVD myndir - hana og Með Allt á Hreinu. Ætli Nýtt Líf fari ekki að koma út á DVD? Hver veit? Að minnsta kosti ekki hann.
Seinna Lúkkið eða Svalasta Sjöan? Þetta er no-win situation. Best að smella sér á báðar.